FitLine Products, Lifestyle

Prótein Súkkulaðikaka

Protein chocolate cake FitLine

Vantar þig fljótlega og holla súkkulaðikökuuppskrift? Þá þarftu ekki að leita lengra – hér er hún! Prófaðu einföldu prótein súkkulaðikökuna okkar með aðeins nokkrum innihaldsefnum og FitLine Whey!

Hráefnin

  • 1 msk smjör eða kókosolía til að smyrja formið
  • 270 g dökkt súkkulaði (70% kakósúkkulaði)
  • 100 ml jurtaolía eða bragðlaus olía
  • 5 egg
  • hnífsodd af salti
  • 1 tsk vanilludropar
  • 22 g FitLine Whey

Leiðbeiningar

  1. Hitið ofninn í 160 ºC.
  2. Penslið bökunarformið með kókosolíu og settu síðan bökunarpappír í formið.
  3. Saxa súkkulaðið og settu það í skál, bættu síðan olíu við. Bræðið það síðan saman, annað hvort í örbylgjuofni eða yfir heitu vatnsbaði. Þegar það hefur blandast vel saman, látið þá blönduna kólna aðeins.
  4. Skiljið eggin að. Bætið salti við eggjahvíturnar og þeytið þar til blandan er orðinn stíf. Setjið til hliðar.
  5. Bætið vanillu út í eggjarauðunar og þeytið þar til blandan er orðinn slétt/mjúk.
  6. Bættu síðan súkkulaðiblöndunni og smjörinu saman við eggjarauðurnar og hræðu vel saman.
  7. Setjið eggjahvítuna saman við. Haltu áfram að hræra þar til þú sérð engar hvítar rákir frá eggjahvítunum.
  8. Bætið síðan við FitLine Whey í blönduna og hrærið.
  9. Notið bökunarform, hámark 20-22 cm í þvermál. Hellið deiginu í bökunarformið og bakið í um það bil 15 mínútur. Gott er að nota prjón eða tann­stöng­ull til að stinga í miðjuna á kökuna. Hún er til­bú­in þegar prjón­inn kem­ur hreinn út.

Þá er þetta komið! Auðveld að búa til, og tryggir að þú fáir gómsætt prótein. Bakaðu, og deildu síðan myndunum með okkur á samfélagsmiðlunum!

Vafrakökur /Cookies

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að tryggja að þú fáir bestu upplifun á vefsíðu okkar. PERSÓNUVERNDARSTEFNA