FitLine Sport

Viltu sjá hvað þú getur?

Viltu sjá hvað þú getur?

Hvernig FitLine styður við metnað þinn í vinsælum íþróttum

Jafnvel þó þú hámarka þig (ennþá) í uppáhalds íþróttinni þinni, þá þarftu samt að takast á við mataræðið, fyrr eða síðar. Sérstaklega ef þú vilt bæta árangur þinn.

Mataræðið þitt verður að vera sniðið að þínu þörfum og þeirri íþrótt sem þú stundar. Markviss fæðubót getur hjálpað til við að tryggja hámarks næringu svo að jafnvel við erfiðar aðstæður að þá hefur líkaminn hámarksafkastagetu.

Þetta gerir mögulegt að styrkja ónæmiskerfið, hafa meiri orku í stuttar, úthalds krefjandi, lotuæfingar og hjálpa til við endurheimt í samræmi við æfingarálag.

Petra Friedrich, 40 ára

Sigraði í Allgäu fjallahlaupinu. (32 km og 3,050 metra hátt)

“Nýlega, fór fram fjallamaraþon í Allgäu. Í góðu hlaupaveðri og þökk sé FitLine, þá vann ég fjallamaraþon kvenna.

Hlaup í sérflokki sem var 32 km og í 3.050 metra hæð. Það var nánast eingöngu á slóðum í krefjandi landslagi. Leiðin lá frá Immenstadt (750m) til Hochgrat sem er 1.834 metra hátt (hæsti punktur ferðarinnar) í miklum hæðarbreytingum. Endastöðin var við Alpe Oberberg í um 1.300 metra hæð. Víða var ekki hægt að hlaupa, svo þar var gengið. Gönguleiðin var brött bæði upp í móti og niður á við. Á þannig leiðum er krafa að vera reynslumikill maraþonhlaupari.

Undanfarna mánuði hef ég ‘safnað’ reynslu af miklum hæðarbreytingum, ýmist gangandi eða á hjóli. Síðan í mars, þegar ég byrjaði að nota FitLine vörurnar (sérstaklega Activize, PowerCocktail og Restorate), hef ég náð ótrúlegum árangri. Ég jafna mig miklu hraðar og þarf varla hvíld, jafnvel eftir langar og orkufrekar æfingar. Mér finnst ég vera í góðu formi, orkumikil og fær um að ná hámarks árangri.

Næsta skref hjá mér verður nokkuð sem ég hefði aldrei ímyndað mér að ég myndi gera. Ég mun skora á sjálfa mig að framkvæma svokallað “Everesting” – 8.848 metra á einum degi, allt upp í móti.

Eftir að hafa verið aðeins í nokkrar vikur á FitLine vörunum, sló ég 10 km tíma metið mitt, 39 ára gömul. Og það án þess að hafa fengið hvíldardag deginum áður og án þess að hafa æft sérstaklega fyrir það. Það er ótrúlegt hvað er mögulegt ef þú ert hlaðin af réttri næringu. “Ótrúlegt – Heillandi – Yndislegt!”

Julian Beuchert, 29 ára

Sigur á PfalzTrail sem voru 36 km og með 780 metra hækkun og annað sætið á STELVIO hálf maraþoni með 2100 metra hækkun

Hér, rétt fyrir hæðar aðlögunar æfinguna við Timmelsjoch (2.474 m) fyrir nokkrum vikum: “ fyrir utan mína uppáhalds vörur PowerCocktail, að þá hefur notkun mín á amínósýru vörunni ProShape Amino tvímælalaust haft jákvæð áhrif. Á meðan aðrir þátttakendur í hæðarþjálfuninni kvörtuðu yfir miklum vöðva eymslum á erfiðum æfingum, átti ég ekki við slík vandamál að stríða. Almennt, séð náði ég betri endurheimt á nóttunum, þó svo að ég hafi á þeim tíma sofið minna og minna vegna erfiðra æfinga.“

Vafrakökur /Cookies

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að tryggja að þú fáir bestu upplifun á vefsíðu okkar. PERSÓNUVERNDARSTEFNA